This is the Ultimate Síða of Ultimate Disney-í!
Söfnin okkar
Dagar síðan The-Disney varð til!
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 733851 dögum
04.11.2008 19:47:39 / Jafar

Whaaat..?

Hvað er í gangi? Allt blog.central kerfið er búið að breytast. Skil ekkert í þessu.

» 0 hafa sagt sína skoðun

06.02.2008 20:03:51 / Jafar

Trivia - Stigatafla

Ok, hér kemur stigatafla fyrir triviuna okkar.

 1 - 10. sæti: Herra Enginn.

Til hamingju Herra Enginn! ^^


» 1 hafa sagt sína skoðun

27.01.2008 12:55:44 / Jafar

Ath: Trivian

Við gleymdum einu í sambandi við Triviuna!

Þegar þið sendið inn svörin verðið þið að senda inn eitthvað leyninafn til að nota í triviunni fyrir stigatöfluna!

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

26.01.2008 17:04:25 / Hades

Disney Trivia!

Hér er komin trivia og við hvetjum alla til að taka þátt! Senda skal svör á : thedisneycentral@gmail.com. Svör verða að vara komin inn fyrir 5. Feb.
 

Reglur: 1. Það má ekki nota netið nema annað sé tekið fram.
           2. Samvinna er leyfileg.

 

Disney staðreyndir:
1. Hver er önnur Disney myndin í fullri lengd? (1 stig)
2. Nefndu 3 Disney myndir sem hafa ekki verið þýddar á íslensku. (1 stig)
3. Hvert er fullt nafn Walt Disney? (1 stig)
4. Afhverju gerði Walt Disney Pétur Pan? (1 stig)    Leyfilegt að leita á netinu.
5. Það hafa verið gerð mörg framhöld af klassískum Disney myndum, s.s. Aladdin 2 og 3, Lion King 2 og 3, Bambi 2, o.fl. En aðeins 3 Disney framhaldsmyndir eru taldar hluti af klassísku Disney myndunum. Nefndu 2 þeirra. (2 stig)   Leyfilegt að leita á netinu.
   

 Söguþráðsspurningar:
1. Þegar Aríel gerir samninginn við sænornina Úrsulu, hvað þarf hún að gefa henni í staðinn fyrir fætur? (Litla Hafmeyjan) (1 stig)
2. Hvað heitir pabbi Jane (eftirnafn)í Tarzan? (1 stig) (1 1/2 stig ef þú ert með starfsheitið hans líka)
3. Hvaða mynd var innblástur fyrir söguþráð Lion King? (1 stig)
4. Nefndu starfsröð Músjús? (1 stig)                                                                                    5.Í myndinni Nýji stíllinn keisarans breyttist keisarinn í lamadýr vegna galdra vonda ráðgjafa hans. Hver var upphafleg áætlun ráðgjafans? (1 stig)


Hættu fimman. (Ef þú svarar öllum spurningum rétt færðu 5 stig, annars ekkert.)
 Hver talsetti eftirfarandi persónur í Íslensku þýðingunni?
- Sasú í Lion King
- Jane í Tarzan
- Jafar í Aladdin
- Músjú í Múlan
- Bangsímon í Ævintýri Bangsímons

 

Ekki senda svör inn sem athugasemd!!!


» 1 hafa sagt sína skoðun

25.01.2008 22:20:38 / Jafar

Myndgátan - Svör

Hér koma svörin við myndgátunni sem ég setti inn um daginn.

1. Sást ekki, en þetta var The Sword in the Stone.

2. Bambi 2 (allir klikkuðu á þessu)

3. Fantasia 2000

4. Spirited Away. Þetta var platspurning (trick question?) þar sem að Spirited Away er japönsk teiknimynd frá Studio Ghibli. Disney framleiddu hana hinsvegar með ensku tali.

5. Sást ekki, en þetta var Pétur Pan.

6. Hrói Höttur

7. Björn bróðir

8. The Three Caballeros

9. The Nightmare Before Christmas

10. Þyrnirós

 

Sigurvegarinn er MovieFan með 6 stig af 8 (myndirnar sem sáust ekki eru ekki taldar með;)).

 

Nýja trivian okkar byrjar á morgun, við munum útskýra allar reglur þá. Stay tuned -.-


» 2 hafa sagt sína skoðun

17.01.2008 16:21:42 / Hades

Disney Trivia!

Guten Tag!

Við höfum ákveðið að hafa Disney Trivia hér á The-Disney! Mun hún vera með 2 vikna millibili eða 1 vikna (ekki ákveðið;)). Vonum að þetta eigi eftir heppnast og að það verði vel tekið í þetta. Ekki fleira að sinni.


» 0 hafa sagt sína skoðun

13.01.2008 13:43:47 / Jafar

Trivia

Mér datt í hug að koma með smá Disney myndagátu á meðan það er ekkert að gerast hérna. Sendið svörin bara á mig: bjarnibenedikts@hotmail.com , ekki gefa álit.

Þetta er mis erfitt, allir ættu samt að geta eitthvað þarna. 

  

1.

2.

3.

4. 

5. 

6.

7.

8.

9.

10.

 

Kem svo með svörin eftir viku eða svo.

 

 


» 6 hafa sagt sína skoðun

03.01.2008 18:12:27 / Jafar

Opnun!

Jæja, þá erum við loksins búnir að opna síðuna aftur. Við erum aðallega búnir að vera að laga síðuna, en við erum búnir að bæta við einhverju í mánaðarins (eigum 2 liði eftir) og erum langt komnir með grein um væntanlegar Disney myndir o.fl.

Gleðileg jól og gleðilegt nýtt ár! :D

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

07.12.2007 22:06:23 / Jafar

101 Dalmatians!

 

Bíð spenntur eftir þessari, kemur í mars. 


» 0 hafa sagt sína skoðun

17.10.2007 22:22:21 / Jafar

Jungle Book Platinum Edition

Loksins loksins!

 

Þessi kemur núna í október

 

 

 

The Jungle Book: 40th Anniversary Edition

 

The Jungle Book: 40th Anniversary Edition

 

Og hér er safnútgáfa af þessu

 


» 6 hafa sagt sína skoðun

17.10.2007 22:16:26 / Jafar

Mánuður..?

Nú er mánuður að verða liðinn síðan síðan (haha ^^) varð til, og bráðlega kominn tími til að skipta á mánaðarins (þessi setning hljómar af einhverjum ástæðum rosalega kjánalega.. :S).

Ég ætla allavega að fara að verða virkari aftur á síðunni, koma með fleiri greinar um Disney myndirnar (búinn að skrifa um Aladdin ef það hefur farið framhjá einhverjum) og kannski að skrifa grein um væntanlegar Disney myndir.

Nú förum við líka að fjalla meira um aðrar Disney myndir, þessar fyrstu vikur hafa snúist mikið um Aladdin, Múlan, Tarzan og Lion King (einfaldlega vegna þess að þær eru uppáhalds myndirnar okkar).

Og síðan erum við náttúrulega opnir fyrir uppástungum og það má stinga upp á einhverju í Gestabókina og þetta er kjánalegasti texti sem ég hef nokkurntímann skrifað.

 Jafar


» 1 hafa sagt sína skoðun

11.10.2007 22:16:27 / Skari

Hallo, bíst ég við?

Uhhh...      í dag er...       11 okt...      2oo7!


Er ekki búinn að skrifa lengi...      úfff...
Vá, hvað hægt er að blóðmjólka sögur, Litla hafmeyan 3 og öskubuska 3...     come on:S...
maður fer að halda að næst komi Herkúles 18 eða eitthvað þar sem barnabarnabarn Herkúlesar kemur og lemur alla, en svo kemur stóri bróðir hans og segir að hann megi ekki vera vondur og allir verða glaðir og öll litli börnin sem enþá nenna að sjá þessa vitleysu læra stóra lexíu!!!
(humm...   það er kanski ekki svo slæm hugmynd!:D)
En ók...    ...rólegur Skari... ...allavega var þetta mín skoðun á illa blóðsognum, meina mjólkuðum myndum sem hafa ekki söguþráð heldu eru bara heilaþvottur...     takk fyrir!! 

» 1 hafa sagt sína skoðun

30.09.2007 15:10:26 / Hades

Hugmyndir o.s.f.v

Daginn gott fólk.

Við hérna Hades,Jafar og Skari gætum ekki verið svo virkir næstu daga vegna hugmyndaflóðs ofl. Myndadæmið er líka eitthvað að pirra okkur svo nýjar myndir koma kannski ekki í bráð. En það er aldrei að vita svo komið oft að skoða það nýjasta og kvittið í gestabókina!


» 0 hafa sagt sína skoðun

27.09.2007 19:12:46 / Jafar

100 gestur

Nú eru komnar 99 heimsóknir, væri gaman ef sá hundraðasti væri til í að skrifa í gestabókina ^^

In other news: Ég var að eignast Lísu í Undralandi!


» 1 hafa sagt sína skoðun

27.09.2007 14:55:12 / Hades

Club Penguin hornið ofl!

Góðan daginn 27. September 2007. Það er Hades sem talar.:S

 

Nú höfum við ákveðið að bæta aðeins við síðuna okkar. Við ætlum að bæta við Club Penguin horninu og Safninu okkar. Í Club Penguin horninu verða fréttir frá Club Penguin og fleira. Í safninu okkar verða Disney myndir sem við sjálfir eigum.;) Við vonum að ykkur líka þessi nýjung á þessari nýju síðu en smá bið gæti leynst á bakvið þetta og við vonum að engin óþægindi skapist sem gerast ekki!:P Kvittið svo í gestabókina í guðanna bænum!:!: :haha:

 

                                         Club Penguin


» 5 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2
Tilvitnun

...

Aríel (þegar hún missti málið) - Litla Hafmeyjan

Leitarbox

RSS tengill